Holmes og Foxx slá sér upp

Orðrómurinn komst á kreik árið 2013, þegar skötuhjúin sáust skemmta …
Orðrómurinn komst á kreik árið 2013, þegar skötuhjúin sáust skemmta sér saman. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Leikkonan Katie Holmes og Jamie Foxx hafa löngum verið orðuð við hvort annað en fjölmiðlar hafa í nokkur ár velt vöngum yfir því hvort skötuhjúin séu par.

Nú virðist þó vera búið að staðfesta orðróminn en vinkona leikarans greindi frá því að Foxx og Holmes væru að slá sér upp.

„Hann er góður vinur minn. Hann er mjög glaður með Katie og mér líkar að hann sé hamingjusamur,“ sagði Claudia Jorda í útvarpsviðtali á dögunum.

Skötuhjúin hafa þó alla tíð neitað því að þau eigi í sambandi, til að mynda sendi talsmaður leikkonunnar frá sér yfirlýsingu á síðasta ári þar sem meint ástarsamband er sagður tómur uppspuni.

Holmes var áður gift leikaranum Tom Cruise og eiga þau eina dóttur saman. Foxx á hins vegar tvær dætur úr fyrri samböndum.

Frétt Daily Mail

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson