„Stærstu mistök lífs míns“

Zara Holland var svipt titlinum Ungfrú Bretland.
Zara Holland var svipt titlinum Ungfrú Bretland.

Zara Holland var á dögunum svipt titli sínum sem Ungfrú Bretland eftir að hafa stundað kynlíf í sjónvarpsþættinum Love Island.

Forsvarsmenn keppninnar töldu málið hið bagalegasta og ákváðu því að svipta Holland krúnunni.

Hin fyrrverandi fegurðardrottning er afar ósátt með gang mála, en hún hefur komið fram í fjölda viðtala síðan titillinn var afturkallaður.

Frétt mbl.is: „Allar konur hafa þarfir“

Í morgun kom hún síðan fram í spjallþætti Lorraine Kelly, sem húðskammaði Holland, og spurði hvort hún hefði gleymt því að þættinum yrði sjónvarpað.

„Þetta var í hita leiksins, en ég gerði stærstu mistök sem ég hef gert. Þetta var hræðilegt. Ég hafði drukkið nokkur kampavínsglös, en kenni því þó ekki um,“ játaði Holland.

„Fyrr um daginn var áskorun, þar sem strákarnir gáfu okkur einkunn, en nýju strákarnir fengu að gefa stelpunum einkunn eftir útliti og hversu skemmtilegar þær þóttu. Ég var fjórða sætasta stelpan og virtist ekki vera álitin mjög skemmtileg. Þannig að maður fer að hugsa, ég er leiðinleg og ekki mjög sæt. Allt þennan dag leiddi síðan að þessu.“

Holland bætti við að hún myndi gjarnan vilja taka aftur það sem hún gerði.

„Ef ég gæti farið aftur í tímann og breytt þessu myndi ég gera það. Ég vildi aldrei nokkurn tímann missa titilinn Ungfrú Bretland.“

Frétt Daily Mail

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson