Katherine Heigl með barni

Katherine Heigl á von á sínu þriðja barni.
Katherine Heigl á von á sínu þriðja barni. Ljósmynd / skjáskot Instagram

Leikkonan Katherine Heigl á von á sínu þriðja barni en fyrir eiga hún og eiginmaður hennar tvær ættleiddar dætur.

Heigl á von á sér í janúar á næsta ári en von er á litlum dreng.

„Þetta kom okkur algerlega í opna skjöldu, en er ótrúlega spennandi. Að ganga með barn er nýtt fyrir mér, en ég þekki þó vel gleðina sem því fylgir að eignast barn,“ sagði leikkonan á bloggsíðu sinni.

 Heigl er að vonum sérlega hamingjusöm, enda var hún ekki viss um að hún gæti orðið þunguð.

„Við vorum að íhuga að ættleiða aftur, eða að taka barn í fóstur, eða þungun ef það væri mögulegt. Þar sem ég hef aldrei verið ólétt, auk þess sem kvensjúkdómalæknirinn minn sagði mér á síðasta ári að ég væri komin af léttasta skeiði, vorum við ekki viss um að þetta væri mögulegt fyrir okkur. Það kom síðan í ljós að þetta var vel mögulegt.“

@joshbkelley and I have some news...go to thoseheavenlydays.com and I'll tell you alllllll about it! 🍼🎉💙

A photo posted by Katherine Heigl (@katherineheigl) on Jun 23, 2016 at 9:24am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant