Rómantíkin allsráðandi hjá Taylor og Tom

Tom Hiddlesotn og Taylor Swift virðast yfir sig ástfangin.
Tom Hiddlesotn og Taylor Swift virðast yfir sig ástfangin. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Samband skötuhjúanna Taylor Swift og Tom Hiddleston er afar nýtt af nálinni, en það hefur þó talsvert verið á milli tannanna á fólki undanfarið.

Frétt mbl.is: Taylor Swift og Tom Hiddleston nýjasta parið?

Swift og fyrrverandi kærasti hennar, skoski plötusnúðurinn Calvin Harris, slitu nýverið sambandi sínu en í kjölfarið hefur söngkonan oftsinnis sést með Hiddleston.

Frétt mbl.is: Swift „dömpaði“ Harris í gegnum síma

Rómantíkin virðist vera við völd en skötuhjúin hafa til að mynda sést dilla sér á tónleikum Selenu Gomez, góðvinkonu Swift. Í gær skelltu þau sér síðan í rómantískan kvöldverð í Nashville, Tennessee.

Líkt og fram kemur í umfjöllun Daily Mail fór vel á með parinu og segja sjónarvottar að þau hafi varla slitið sig frá hvort öðru.

Skötuhjúin áttu erfitt með að slíta sig frá hvort öðru.
Skötuhjúin áttu erfitt með að slíta sig frá hvort öðru. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson