„Ég hef verið að tala við tröll í svolítið langa tíma og þau eru mjög hrifin af myndlist,“ sagði Egill Sæbjörnsson á blaðamannafundi í Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar þegar tilkynnt var að hann yrði fulltrúi Íslands á 57. Feneyjartvíæringnum árið 2017. Sýning hans verður unnin í samstarfi við Stefanie Böttcher sýningarstjóra.
„Tröllin eru oft að horfa yfir öxlina á mér og vilja föndra eitthvað með mér,“ sagði Egill. „Þessi tröll eru komin í samvinnu með mér og ég held að ég taki þau með mér til Feneyja.“
Getur þú þá upplýst okkur um það hvað sýningin þín í Feneyjum mun fjalla um?
„Nei. En þetta verður einhverskonar espresso bar.“
Nú er erfitt að tengja saman tröll og espresso kaffi, getur þú sagt eitthvað nánar frá þeirri hugmynd sem þú ætlar að vinna með á Feneyjatvíæringnum?
„Nei, það er betra að segja frá því þegar ég er kominn lengra í hugmyndavinnunni.“
Afhverju varst þú valinn?
„Ég hef ekki hugmynd um hvað það var sem heillaði nefndina en ég er sáttur við val hennar.“
Egill Sæbjörnsson er myndlistamaður, gjörningalistamaður, tónlistamaður og tónskáld. Verk hans samanstanda oftar en ekki af samblöndu raunverulegra hluta sem sveipaðir eru tálsýn og töfrum í gegnum vídeóvörpun og hljóð. Nýmiðlar, gjörningar og tónlistarflutningur spila stórt hlutverk í verkum hans.
Egill beitir kímni sinni, klókindum og dýpt, öllu á sama tíma. Hann ruglar fólk í ríminu og kemur á óvart á meðan hann leiðir okkur á ánægjulegan hátt að tilvistarspurningum. Verk Egils eru tilraunakennd og þarfnast hvorki leiðbeininga né kunnáttu til skilnings og upplifunar.
Fagráðið er stóð að valinu þessu sinni segir: „Uppátækjasemin og skopskynið sem einkennir verkefni Egils, auk færni hans í að draga saman aðskilda heima með notkun mismunandi miðla til þess að skapa heilsteypt heildarumhverfi þar sem raunveruleikinn skarast við hið ímyndaða, mun fanga athygli áhorfenda á Feneyjatvíæringnum árið 2017, með sínum marglaga heimi sem endurspeglar okkar samtíma og á erindi við heiminn allan,“ segir í fréttatilkynningu frá Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar.
Stefanie Böttcher segir: „Ég er mjög heiðruð af vali dómnefndar. Það er heljarinnar áskorun að sýningarstýra íslenska skálanum á Feneyjatvíæringnum sem er ein helsta listasýning í heimi. Ég hlakka afskaplega mikið til verkefnisins og ég er sannfærð um að gestir sýningarinnar verði algjörlega hugfangnir af framlagi Egils Sæbjörnssonar. Um leið og þeir stíga fæti inn í verkið, verða þeir hluti af því.“
Egill býr og starfar í Berlín og Reykjavík. Verk hans og gjörningar hafa verið sýnd í Hamburger Bahnhof, safni fyrir samtímalist í Berlín; Frankfurter Kunstverein; Kölnischer Kunstverein; The Baryshnikov Art Center í New York; Oi Futuro í Rio de Janeiro; PS! MoMA; Kiasma í Helsinki og Nýlistasafni Ástralíu í Sydney.
Þess má geta að Egill verður með sýningu í Hafnarborg í haust þannig að Íslendingar geta notið tjáningar hans áður en hann fer til hinnar fornu listaborgar á Ítalíu, Feneyja, sem eru hægt að sökkva í sæ.
Á Feneyjatvíæringnum eru 128 listamenn frá 128 þjóðum.
Þessi listasýning hófst á 19. öld, nánar tiltekið 1895 og það var sjálfur konungur Ítalíu, Umberto I, sem opnaði þá sýningu.
Fyrst var fókusinn á ítalska listamenn en hátíðin var orðin mjög alþjóðleg strax á fyrstu áratugum 20. aldarinnar.
Síðustu áratugina hefur sérhvert land átt möguleika á að senda fulltrúa á sýninguna að uppfylltum ákveðnum gæðastandard. Þjóðir heimsins í dag eru um það bil 196 og 128 þjóðir taka þátt í sýningunni í þessari fornu viðskiptaborg sem í langan tíma var öflugasta borg heimsins, bæði hvað varðar menningu og viðskipti.
Fyrir okkur leikmennina er Feneyjatvíæringurinn eitt af því stærsta í myndlistarheiminum, er það þannig fyrir ykkur? Er þetta eitthvað sem færir ferilinn þinn upp á eitthvert æðra plan?
„Nei,“ segir Egill Sæbjörnsson. „Ég sá einhverntímann samantekt á þeim sem hafa tekið þátt í Feneyjatvíæringnum og það var á við símaskrá að sjá þann nafnafjölda. Að því sögðu þá er þetta samt ein elsta sýning í heiminum í dag og ég er alveg í skýjunum með að hafa verið valinn. Ég held að aðeins sýningin í Sao Paulo sé eldri, en samt held ég að Feneyjatvíæringurinn slái henni við bæði hvað aldur og virðingu varðar. Ég var mjög spenntur á meðan valið var í gangi og þegar ég fékk símhringinguna og fékk að vita að ég fengi að vera með mín verk þarna þá hoppaði ég og dansaði af ánægju og gleði.“
Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar er umsjónaraðili íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum.
Val á fulltrúa Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2017 var í höndum fagráðs sem samanstóð af Björgu Stefánsdóttur framkvæmdastjóra KÍM, Hlyni Hallssyni safnstjóra Listasafnsins á Akureyri og Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur listamanni.
Gestir fagráðsins að þessu sinni voru Aðalheiður Guðmundsdóttir, listheimspekingur og fagstjóri fræðigreina við myndlistardeild Listaháskóla Íslands, og Libia Castro listamaður.
Eina tröllið sem ég sé fyrir mér í samtíma okkar er Donald Trump, mun sýningin þín fjalla um hann?
„Nei, það er ekki markmiðið,“ segir Egill. „Tröll eru víða. Og það er alltaf smá tröll í okkur öllum. Það eru líka stórar verur í samfélaginu eins og í fyrirtækjum þar sem valdamikið og stórt fólk er í stjórnum en svo ber enginn þeirra ábyrgð.
Þetta er allt áhugavert eins og með átökin í samfélaginu sem eru í gangi í dag.
En ég gef ekkert upp um hvað verk mitt mun fjalla um,“ sagði Egill Sæbjörnsson.