Kanye kúrir með nöktum „stjörnum“

Skjáskot/ Tidal

 Nýtt tónlistarmyndband Kanye West var frumsýnt á Tidal á föstudag. Myndbandið er við lagið „Famous“ af plötunni The Life of Pablo en það sem vakið hefur athygli er þó ekki tónlistin.

Myndbandið virðist nefnilega sýna naktar stjörnur kúra saman í risavöxnu rúmi. Talsvert líklegra er að um sé að ræða fólk sem er afar líkt stjörnunum og hefur verið farðað eða breytt í myndvinnslu til að líkjast þeim enn frekar.

Skotið sem sýnir allan hópinn er vísun í málverkið „Sleep“ eftir Vincent Desiderio. „Stjörnurnar“ á myndinni eru George W. Bush, Anna Wintour, Donald Trump, Rihanna, Chris Brown, Taylor Swift, Kanye West, Kim Kardashian West, Ray J, Amber Rose, Caitlyn Jenner, Bill Cosby.

Ekki þarf sérfræðing til að sjá að jafnvel aðeins þetta eina skot er hlaðið merkingu um hvað varðar kynlíf, pólitík, kynferðisofbeldi og aðra áþekka þætti en sökum lagatextans: „I feel like me and Taylor might still have sex. Why? I made that bitch famous,“ er ekki ólíklegt að einblínt verði á einn ákveðinn anga þess í komandi umfjöllun.

Taylor Swift hefur enda mótmælt framkomu West í hennar garð harðlega en West hefur fullyrt að textinn hafi verið gerður með hennar samþykki. Á samfélagsmiðlum spá margir því að myndbandið muni leiða af sér mikinn fjölda lögsókna. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson