Nýja platan full af hjartasorgum og hugarangri

Lily Allen notar tónlistina til að létta á hjarta sínu.
Lily Allen notar tónlistina til að létta á hjarta sínu. AFP

Söngkonan Lily Allen, sem nýverið skildi við eiginmann sinn Sam Cooper, vinnur nú að nýju efni.

Að sögn plötuframleiðandans Mark Ronson notar Allen lagasmíðarnar til að létta á hjarta sínu, en platan er full af hugarangri og hjartasorgum.

„Við höfum verið að skrifa saman á ný fyrir nýju plötuna. Mér finnst þetta vera einhver bestu lög sem hún hefur skrifað. Röddin hennar hljómar ótrúlega,“ sagði Ronson í samtali við The Sun.

„Efnið sem við erum að vinna að er einhver sú heiðarlegasta og harmþrungnasta tónlist sem ég hef heyrt. Maður finnur að hún semur af miklum heiðarleika.“

Síðasta plata söngkonunnar kom út fyrir tveimur árum og nefnist Sheezus.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson