Tenniskonan Maria Sharapova, sem í janúar var dæmd í tveggja ára keppnisbann vegna notkunar á ólöglegum lyfjum, mun í haust hefja nám við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum.
Sharapova tilkynnti um þetta á Twitter-síðu sinni í dag. „Ég veit ekki hvernig þetta gerðist, en halló Harvard! Get ekki beðið eftir að hefja nám,“ skrifaði Sharapova til fylgjenda sinna í dag.
Mun hún taka viðskiptafræðiáfanga við háskólann.
Sharapova hefur unnið fjölda titla á ferli sínum, meðal annars hefur hún sigrað öll fjögur stóru tennismótin, Wimbledon, Opna ástralska, Opna franska og Opna bandaríska.
Not sure how this happened but Hey Harvard! Can't wait to start the program! 🎓📓 pic.twitter.com/EOoKYhaQli
— Maria Sharapova (@MariaSharapova) June 25, 2016