Taylor Swift öskuill yfir myndbandi Kanye

Taylor Swift er fúl og svekkt yfir nýjasta tónlistarmyndbandi Kanye …
Taylor Swift er fúl og svekkt yfir nýjasta tónlistarmyndbandi Kanye West. AFP

Hinn umdeildi rappari Kanye West sendi á dögunum frá sér nýtt tónlistarmyndband við lagið „Famous“ sem finna má á plötunni Life of Pablo.

Myndbandið hefur vakið töluvert umtal, sér í lagi vegna þess að það virðist sýna naktar stórstjörnur kúra saman í stærðarinnar rúmi.

Frétt mbl.is: Kanye kúrir með nöktum „stjörnum“

Á meðal „stjarnanna“ sem prýða myndbandið er Taylor Swift, eða öllu heldur höggmynd sem líkist söngkonunni verulega líkt og fram kemur í frétt IndieWire.

Swift er ekki alls kostar ánægð að hafa ratað í myndbandið, en hún og West hafa lengi eldað grátt silfur saman.

„Taylor er bæði öskuill og skelfingu lostin. Hún vissi ekki hvað hún ætti að gera þegar hún frétti af myndbandi Kanye. Hún er ráðvillt, finnst hún illa svikin og er sérlega vonsvikin með Kanye,“ er haft eftir ónefndum heimildamanni.

Eins og frægt er orðið má finna orðin: „I feel like me and Taylor might still have sex. Why? I made that bitch famous,“ í umræddu lagi. En Swift hefur áður lýst vanþóknun sinni á textanum.

Frétt Mirror

Stilla úr tónlistarmyndbandi Wests.
Stilla úr tónlistarmyndbandi Wests. Skjáskot/Tidal
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson