Eiginkonan stappaði stálinu í Vardy

Jamie Vardy og frú voru heldur súr á svip að …
Jamie Vardy og frú voru heldur súr á svip að leik loknum í gær. Ljósmynd / skjáskot Mirror

Vonbrigðin leyndu sér ekki á andliti fótboltakappans, og leikmanns enska landsliðsins, Jamie Vardy eftir ósigur Englendinga í gær.

Sem betur fer á Vardy góða að en eiginkona hans, Rebekah Vardy, stappaði að sjálfsögðu stálinu í sinn mann eftir leikinn.

Samkvæmt umfjöllun Mirror hefur Rebekah Vardy mikið látið í sér heyra opinberlega framan af keppninni, hún hefur þó verið þögul sem gröfin eftir leikinn í gær.

Rebekah var ekki sú eina sem þurfti að hugga harmi sleginn aðstandanda en Coleen Rooney, eiginkona Wayne Rooney, hughreysti son þeirra hjóna eftir að leikur gærdagsins var flautaður af.

Frétt mbl.is: Coleen huggaði soninn

Eiginkonan stappaði stálinu í sinn mann.
Eiginkonan stappaði stálinu í sinn mann. Ljósmynd / skjáskot Mirror
Hjónakornin féllust í faðma að leik loknum.
Hjónakornin féllust í faðma að leik loknum. Ljósmynd / skjáskot Mirror
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson