Kylie opnar dyr sínar fyrir Tyga

Kylie Jenner og Tyga skelltu sér út á lífið um …
Kylie Jenner og Tyga skelltu sér út á lífið um helgina. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Samband skötuhjúanna Kylie Jenner og rapparans Tyga hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarna mánuði. Nýverið slitu þau sambandi sínu, en nú virðast þau hafa tekið upp þráðinn að nýju.

Alvara virðist hlaupin í sambandið, en samkvæmt frétt People hefur Jenner beðið Tyga að flytja inn til sín.

„Það er opinbert að þau eru farin að hittast aftur,“ sagði heimildamaður miðilsins.

Rapparinn hefur undanfarið átt við fjárhagsvanda að stríða, og kemur það honum því eflaust vel að stjarnan skuli opna dyr sínar fyrir honum.

„Fjölskylda Jenner hefur engar sérstakar áhyggjur af því að þau hafi tekið upp þráðinn að nýju, enda halda þau að sambandið sé ekki varanlegt,“ bætti annar heimildamaður People við.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson