Rómantík í Róm

Tom Hiddleston og Taylor Swift virðast yfir sig ástfangin.
Tom Hiddleston og Taylor Swift virðast yfir sig ástfangin. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Samband Taylor Swift og Tom Hiddleston er ansi nýtt af nálinni, en það hefur þó verið talsvert á milli tannanna á fólki undanfarnar vikur.

Swift og fyrrverandi kærasti hennar, skoski plötusnúðurinn Calvin Harris, slitu nýverið sambandi sínu, en Swift og Hiddleston hafa verið óaðskiljanleg síðan.

Þá hafa skötuhjúin til að mynda kynnt hvort annað fyrir foreldrum sínum, sem og ferðast til hinna ýmsu landa. Samkvæmt frétt Daily Mail hafa skötuhjúin nú flogið til Rómar, eftir að hafa eytt tíma saman á Rhode Island, New York, Nashville og í Bretlandi.

Swift býr svo vel að eiga einkaþotu, sem gerir ferðalögin þeim mun einfaldari.

„Hún skemmtir sér konunglega á ferðalögunum með honum. Hann er afar rómantískur og umhyggjusamur í garð hennar. Hann er sérlega hrífandi,“ segir ónefndur heimildamaður.

Frétt mbl.is: Taylor hitti tengdó

Frétt mbl.is: Rómantíkin allsráðandi hjá Taylor og Tom

Skötuhjúin heimsóttu hringleikahúsið í Róm.
Skötuhjúin heimsóttu hringleikahúsið í Róm. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant