Russell Brand trúlofaður

Laura Gallacher og Russell Brand eiga von á litlum erfingja.
Laura Gallacher og Russell Brand eiga von á litlum erfingja. Ljósmynd / skjáskot The Sun

Fregnir herma að hinn gamansami Russell Brand hafi beðið um hönd kærustu sinnar, Lauru Gallacher, en hún gengur með fyrsta barn þeirra skötuhjúa.

Samkvæmt frétt dagblaðsins The Sun héldu skötuhjúin veislu á heimili sínu um helgina, þar sem þau fögnuðu trúlofuninni með vinum og fjölskyldu.

„Russell vildi ekki gera mikið mál úr þessu eftir sambandið við Katy Perry, sem var mikið í sviðsljósinu. Laura vill einnig halda sambandi þeirra á lágstemmdu nótunum, svo þessi veisla var mikið í takt við það,“ sagði heimildamaður dagblaðsins.

Brand var áður giftur söngkonunni Katy Perry, en hjónaband þeirra stóð yfir á árunum 2010-2012.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson