Bræðurnir Liam og Noel Gallagher hafa lengi eldað grátt silfur saman, og hefur samband þeirra verið mikið á milli tannanna á fólki síðan hljómsveit þeirra Oasis lagði upp laupana.
Von er á nýrri heimildamynd um sveitina, en áætlað er að myndin sem ber titilinn Supersonic komi út í október.
Liam tók að sér að kynna myndina á kvikmyndahátíðinni Cannes fyrr á árinu, en Noel hefur lítið viljað tjá sig um verkefnið – að því er virðist vegna þess að honum þykir bróðir sinn sleppa heldur til vel í myndinni.
„Ég er of nálægt myndinni til að geta dæmt hana. Liam kemur þó vel út úr henni.“
„Ég er búinn að vera á tónleikaferðalagi og að taka upp plötur. Þess vegna er ég ekki í skapi til að vera að velta mér upp úr einhverju sem gerðist fyrir 20 árum.“
Ummælin lét Noel falla eftir að bróðir hans kallaði hann kartöflu, eina ferðina enn. Noel segist þó ekki nenna að velta sér upp úr þessu, líkt og fram kemur í frétt Mirror.