Jennifer Aniston brotnaði niður í miðri ræðu

Jennifer Aniston brotnaði niður í ræðu sinni á dögunum.
Jennifer Aniston brotnaði niður í ræðu sinni á dögunum. AFP

Leikkonan Jennifer Aniston var gestur kvikmyndahátíðarinnar Giffoni Film Festival á dögunum, þar sem hún tók á móti verðlaunum fyrir störf sín innan kvikmyndageirans.

Aniston hélt tölu á hátíðinni, þar sem börnum og ungmennum var gert kleift að spyrja hana spjörunum úr. Spurning ungrar stúlku virðist hafa komið leikkonunni að óvörum, en hún vildi vita hvort Aniston vaknaði stundum á morgnana og væri ekki viss um hver hún væri.

„Það eru ekki nógu margir fingur eða tær í þessu herbergi til að telja hversu oft það hefur hent mig. Þegar allt kemur til alls erum við öll manneskjur, hvort sem við störfum sem gengilbeinur, bakarar eða erum nemar. Öll getum við klesst á veggi og fundist eins og við getum ekki haldið áfram. Eða að við hugsum með okkur að þetta sé of mikið, að hjartað okkar þoli ekki sársaukann, eða að við hugsum með okkur er ég nógu góður, mun ég komast af?“

Leikkonan hélt síðan áfram, eftir að hafa þurrkað tár af hvarmi sínum, líkt og fram kemur í frétt E-online.

„Og maður verður bara á einhvern undraverðan hátt að komast yfir þetta. Þú segir bara, ég get ekki. Jú, ég get það víst. Jú, þið getið það.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson