Biður aðdáendur að virða einkalíf sitt

Egor Tarabasov og Lindsay Lohan.
Egor Tarabasov og Lindsay Lohan. Skjáskot Instagram

Leikkonan Lindsay Lohan hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarið, og nú síðast eftir heljarinnar rifrildi milli hennar og unnustans, Egors Tarabasovs.

Lohan biðlaði til aðdáenda sinna að hætta að velta sér upp úr einkalífi hennar og gefa þeim skötuhjúum næði til að vinna úr sínum málum.

„Mér þætti vænt um ef þessar getgátur um persónulegt líf mitt myndu líða undir lok. Því miður hafa einkamál mín verið gerð opinber án míns vilja. Mér þætti vænt um ef ég og unnusti minn gætum sjálf fengið að ræða okkar einkamál, okkar á milli. Það eru mikilvægari hlutir að gerast í heiminum.“

Líkt og fram kemur í frétt Daily Mail þykir mörgum aðdáendum leikkonunnar þarna skjóta skökku við, enda deildi hún ýmsu misjöfnu um unnustann á samfélagsmiðlum undanfarið. Til að mynda greindi leikkonan frá því að Tarabasov hefði látið sig hverfa í tvo daga og sést skemmta sér með vændiskonum.

Frétt mbl.is: Lögregla kölluð á heimili Lohan vegna gruns um heimilisofbeldi

 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant