Búið spil hjá Rob og Blac Chyna?

Blac Chyna og Rob Kardashian eiga von á lítilli stúlku.
Blac Chyna og Rob Kardashian eiga von á lítilli stúlku. Ljósmynd / skjáskot Instagram

Samband raunveruleikastjarnanna Robs Kardashians og Blac Chyna hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarið.

Skötuhjúin felldu saman hugi í byrjun árs, en þau eiga von á barni í október.

Fregnir herma að samband parsins sé liðið undir lok, en samkvæmt umfjöllun Mirror á Kardashian að hafa fundið grunsamleg skilaboð á síma fyrirsætunnar.

Kardashian hætti í kjölfarið að fylgja Chyna á samfélagsmiðlum, og eyddi að lokum öllum myndum af henni af instagramreikningi sínum.

Allt virtist leika í lyndi hjá skötuhjúunum undanfarið, en þau greindu nýverið frá því að þau ættu von á stúlku.

Frétt mbl.is: Rob og Blac Chyna eiga von á stúlku

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson