Opnar sig um eiturlyfjanotkunina

Jared Leto var vandræðagemsi á sínum yngri árum.
Jared Leto var vandræðagemsi á sínum yngri árum. Ljósmynd / skjáskot Instagram

Leikarinn Jared Leto opnaði sig um eiturlyfjanotkun sína í viðtali á dögunum. 

„Reynsla mín af eiturlyfjum. Ég notaði mikið af þeim. Sum voru mjög skemmtileg, síðan eru nokkur sem eiga það til að sparka í rassinn á manni,“ sagði leikarinn í viðtali við tímaritið Rolling Stone.

„Ég býst við því að á einhverjum tímapunkti þurfi maður að taka ákvörðun um hvernig líf manns eigi að vera. Ég ákvað að eltast við aðra drauma,“ játaði leikarinn, sem sagði að notkun fíkniefna væri gjarnan of dýru verði keypt.

„Ég sá bara of mörg dæmi um hvað maður ætti ekki að gera.“

Leikarinn er um þessar mundir að kynna nýjustu mynd sína, Suicide Squad, þar sem hann fer með hlutverk Jókersins. Myndin verður frumsýnd hér á landi í byrjun ágúst.

Jared Leto hittir uppáklæddan aðdáanda á Comic Con-ráðstefnunni.
Jared Leto hittir uppáklæddan aðdáanda á Comic Con-ráðstefnunni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson