Stórleikarinn Leonardo DiCaprio nýtur lífsins þessa dagana með kærustunni, undirfatafyrirsætunni Ninu Agdal, en þau eru á ferðalagi um Evrópu.
Agdal, sem meðal annars hefur setið fyrir hjá undirfatarisanum Victoria's Secret, og Dicaprio eru talin hafa byrjað að stinga saman nefjum í byrjun sumars. Skötuhjúin voru þó fyrst orðuð við hvort annað árið 2014.
Leikarinn hefur enn ekki verið kynntur fyrir fjölskyldu hinnar dönsku Agdal, en amma hennar er þó strax farin að láta leikarann heyra það.
„Við höfum ekki heilsað upp á hann, en við vonum að hann komi skikkanlega fram við hana. Annars er mér að mæta,“ sagði Lorna Agdal í samtali við Daily Mail.