Sleikir sárin í sólinni

Ekki virðast allir taka föður Lohan trúanlegan, enda hefur leikkonan …
Ekki virðast allir taka föður Lohan trúanlegan, enda hefur leikkonan bæði sést reykja og drekka áfengi í fríinu. Ljósmynd / skjáskot Mirror

Leikkonan Lindsay Lohan hefur mikið verið í sviðsljósinu undanfarið, en hún sleit nýverið sambandi við unnusta sinn, hinn rússneska Egor Tarabasov.

Frétt mbl.is: Lohan slítur trúlofuninni

Eftir sambandsslitin fór Lohan til Sardiníu þar sem hún nýtur lífsins á snekkju, en faðir leikkonunnar, Michael Lohan, greindi nýverið frá því að hún sé með barni.

„Hún sendi mér skilaboð og sagði mér frá þessu. Ég veit ekki hversu langt á leið hún er komin. Hún segir mér að hún sé ólétt, og ég hef enga ástæðu til þess að rengja hana. Mér var örlítið brugðið, en við þessu var að búast. Hún er þrítug,“ sagði Michael í samtali við Page Six.

Frétt mbl.is: Lögregla kölluð á heimili Lohan vegna gruns um heimilisofbeldi

Lohan sást sötra á bjór, og vilja því margir meina …
Lohan sást sötra á bjór, og vilja því margir meina að hún sé ekki með barni. Ljósmynd / skjáskot Mirror
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson