Van Damme stormaði út úr viðtali

Jean Claude Van Damme lætur ekki bjóða sér hvað sem …
Jean Claude Van Damme lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Ljósmynd / skjáskot Sky Sport

Leikarinn Jean Claude Van Damme er orðinn hundleiður á spurningum blaða- og fréttamanna, sem hann segir þrautleiðinlegar og fyrirsjáanlegar.

Í gær kom stjarnan fram í morgunþætti ástralskrar sjónvarpsstöðvar, en viðtalið fór ekki betur en svo að stjarnan stormaði út áður en því lauk.

„Þið verðið að fyrirgefa, en ég get þetta ekki lengur. Pressan hefur verið að spyrja mig sömu spurninga í 25 ár. Kylie Minogue, hvernig er þjálfun þinni háttað? Hvernig er hitt, hvernig er þetta? Þær eru leiðinlegar. Allt í lagi, næsta spurning. Hafið þið eitthvað áhugavert að spyrja mig?“

Ekki virðast þáttastjórnendur hafa lumað á áhugaverðum spurningum, enda stóð Van Damme upp, reif af sér hljóðnemann og gekk út. Og þar með var viðtalinu, sem fram fór í gegnum gervihnött, lokið.

Frétt People



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant