Caitlyn Jenner kærir ljósmyndara

Caitlyn Jenner segir að ljósmyndarar hafi elt hana á röndum …
Caitlyn Jenner segir að ljósmyndarar hafi elt hana á röndum daginn sem slysið varð. AFP

Raunveruleikastjarnan Caitlyn Jenner hefur kært ljósmyndara fyrir hlut þeirra í bílslysi sem hún lenti í á síðasta ári.

Áreksturinn átti sér stað í Malibu, en Kim Howe, kona á sjötugsaldri beið bana í slysinu.

Forsaga málsins er sú að Jenner keyrði aftan á bifreið Howe, sem síðan skaust yfir á öfugan vegarhelming og í veg fyrir annan bíl. Howe lést skömmu síðar á slysstað.

Jenner heldur því fram að ljósmyndarar hafi veitt henni eftirför og áreitt allan daginn í von um að smella af henni mynd, sem síðan hafi orðið til þess að athygli hennar við aksturinn skertist.

Samkvæmt frétt People vill Jenner að ljósmyndararnir verði gerðir skaðabótaskyldir og þeim verði gert að borga hluta þeirra skaðabóta, auk lögfræðikostnaðar, sem málið hefur haft í för með sér.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson