Selena Gomez lætur Bieber heyra það

Þau Bieber og Richie.
Þau Bieber og Richie. Instagram/Sofia Richie

Það hefur ekki farið fram hjá mörgum aðdáendum ungstirnisins Justins Biebers að hann er kominn með nýja kærustu.

Undanfarna daga hefur söngvarinn og Sofia Richie, sem er dóttir Lionel Riche, verið að slá sér upp.

Frétt mbl.is: Bieber og Richie að slá sér upp?

Söngvarinn hefur verið duglegur að birta myndir af þeim skötuhjúum á Instagram-síðu sinni, við lítinn fögnuð kvenkyns aðdáenda hans.

Í raun hótaði Bieber að læsa Instagram-reikningi sínum, enda fékk hann yfir sig fúkyrðaflaum þar sem æstir aðdáendur létu móðan mása um kærustu hans.

Þá virðist Selena Gomez, fyrrverandi kærasta Biebers, einnig hafa sterkar skoðanir á sambandi þeirra en hún skrifaði athugasemd við færslu söngvarans líkt og fram kemur í frétt Mirror.

„Ef þú þolir ekki hatrið skaltu ekki vera að deila myndum af kærustunni þinni - lol. Þetta ætti að vera ykkar á milli. Ekki vera reiður við aðdáendur þína, þeir elska þig.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson