Jóhann Jóhannsson tónskáld kemur til með að semja tónlistina fyrir sjálfstætt framhald kvikmyndarinnar Blade Runner. Jóhann, sem hefur tvisvar verið tilnefndur til Óskarsverðlauna, sagði í viðtali við Lestina á Rás 1 að aðkoma hans hefði átt langan aðdraganda.
„Þetta hefur verið í gerjun mjög lengi,“ sagði Jóhann en tökur myndarinnar hófust í sumar og um leið samning tónlistarinnar. Leikstjóri framhaldsmyndarinnar er Denis Villeneuve en hann leikstýrði Sicario og Prisoners. Jóhann samdi tónlistina í báðum myndum og hlaut óskarstilnefningu fyrir þá fyrrnefndu.
Harrison Ford snýr aftur sem Rick Deckard í myndinni og þá bregður fyrir þeim Robin Wright, Ryan Gosling og Jared Leto.