Idris Elba reynir fyrir sér sem bardagakempa

Breski leikarinn Idris Elba hefur ákveðið að söðla um.
Breski leikarinn Idris Elba hefur ákveðið að söðla um. AFP

Leikarinn Idris Elba hefur ákveðið að söðla um og gerast atvinnumaður í bardagaíþróttum. Undanfarið ár hefur hann æft af kappi, en hann hyggst keppa í svokölluðu „kick-boxi“.

Þá ætlar leikarinn að gefa forvitnum innsýn inn í líf sitt, en gerðir verða heimildaþættir um átökin.

„Mig hefur alla tíð dreymt um að verða atvinnumaður í bardagaíþróttum. Að fara inn í hringinn, til að reyna á þolmörk mín sem manneskju, er eitthvað sem mig hefur lengi langað að gera.“

Samkvæmt frétt Mirror hefur Elba verið við æfingar í Bretlandi, á Kúbu, í Japan, Suður-Afríku og Taílandi þar sem hann hefur notið liðsinnis heimsklassaþjálfara.

Þá þvertekur leikarinn fyrir að um sýndarmennsku sé að ræða.

„Þetta er ekki leikur. Það er ekkert handrit. Þessi slagur er tekinn af fúlustu alvöru, og afleiðingarnar sömuleiðis,“ segir í fréttatilkynningu sem leikarinn sendi frá sér.

Cutting weight, two days before first fight, mind in the right place. Fear NO guy.

A photo posted by 7dub (@7dub) on Aug 22, 2016 at 1:22am PDT


 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson