Sólarvörn með kjúklingalykt rauk út

Hver vill ekki ilma eins og djúpsteiktur kjúklingur?
Hver vill ekki ilma eins og djúpsteiktur kjúklingur? Ljósmynd / skjáskot KFC

Skyndibitakeðjan KFC, sem hingað til hefur einblínt á djúpsteiktan kjúkling og franskar, hefur nú sent frá sér sína fyrstu snyrtivöru. Um er að ræða sólarvörn, sem að sjálfsögðu lyktar eins og steiktur kjúklingur.

Forráðamenn fyrirtækisins þvertaka fyrir að um gabb sé að ræða, en segja þó að varan hafi verið framleidd í afar litlu upplagi. Þá hefur verið fjallað um sólaráburðinn í ýmsum fjölmiðlum, svo sem Mirror og E!

„Ég myndi gjarnan vilja segja að viðskiptavinir okkar hafi beðið um þetta, en það hafa þeir ekki gert. Í raun er ég nokkuð viss um að enginn hafi nokkru sinni beðið um neitt þessu líkt. Þetta er bara klikkuð hugmynd sem við fengum,“ segir í yfirlýsingu Kevin Hochmans, sem fer fyrir markaðsmálum KFC í Bandaríkjunum.

Hægt var að nálgast sólarvörnina endurgjaldslaust í gegnum heimasíðu KFC, en þeir 3.000 brúsar sem framleiddir voru ruku út eins og heitar lummur. Eða réttara sagt eins og djúpsteiktur kjúklingur.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson