Kynlífið batnaði til muna

Emily Blunt og John Krasinski eignuðust dóttur á dögunum.
Emily Blunt og John Krasinski eignuðust dóttur á dögunum. AFP

Leikarinn og leikstjórinn John Krasinski viðurkenndi á dögunum að kynlífið hefði batnað til muna eftir að hann kom sér í gott form.

Leikarinn æfði af kappi fyrir kvikmyndina 13 Hours: The Secret Soldiers of Benghazi, þar sem hann fer með hlutverk hermanns.

„Á algerlega eigingjörnum nótum verð ég að viðurkenna að kynlífið er miklu betra eftir að ég varð helmassaður,“ sagði leikarinn í viðtali við tímaritið Elle.

„Manni líður mun betur með sjálfan sig og á auðveldara með að sjá sig sem meiri kynveru, sem er mjög skemmtilegt.“

Krasinski segir eiginkonuna, Emily Blunt, vera sátta við gang mála þótt hún hafi einnig verið hrifin af honum þegar hann var með bumbu.

„Sannleikurinn er sá að hún er hrifin af mér hvort sem er. Ég held samt að hún muni ekki sparka gæjanum með þvottabrettamagann fram úr rúminu.“

Leikarinn þurfti að koma sér í hörkuform fyrir sína nýjustu …
Leikarinn þurfti að koma sér í hörkuform fyrir sína nýjustu kvikmynd. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant