Thomas Gibson, sem á dögunum var rekinn úr þáttunum Criminal Minds fyrir að veitast að samstarfsmanni sínum, íhugar að snúa sér að gamanleik í kjölfarið.
Frétt mbl.is: Rekinn fyrir að lemja framleiðanda
Þessu greindi leikarinn frá í viðtali við The Hollywood Reporter.
„Fólk er alltaf að segja mér að það vilji endilega sjá mig í gamanþáttum á ný. Hugsanlega er kominn tími til, þar sem hlátur er talinn besta meðalið.“
Frétt mbl.is: Gibson ber fyrir sig sjálfsvörn