Mikið hefur verið skrafað um endurkomu Kryddpíanna, en í ár eru 20 ár liðin síðan þær slógu í gegn.
Aðdáendur sveitarinnar höfðu vonast til þess að stöllurnar kæmu saman á ný í tilefni af afmælinu, en svo virðist vera sem það muni ekki gerast enda hafa bæði Victoria Beckham og Mel C þvertekið fyrir það.
Íþróttakryddið, Mel C, greindi frá því á dögunum að hún myndi gjarnan vilja endurlifa frægðardaga sína á ný, auk þess sem hún viðurkenndi að endurkoman myndi vera sérlega góð fyrir pyngjuna. Það væri þó ekki nóg.
„Við vorum þó fimm manna hljómsveit. Náðum við ekki toppnum þegar við tróðum upp á Ólympíuleikunum árið 2012?“ sagði söngkonan í viðtali við Love Magazine.
„Það er mikið hægt að tala um að hætta á toppnum. Fyrir mitt leyti var hátindur Spice Girls-daga minna þegar milljarður manna horfði á okkur troða upp á Ólympíuleikunum árið 2012.“