Þurfti að þyngja sig fyrir hlutverk

Wahlberg segir það hafa verið gaman að fá að borða …
Wahlberg segir það hafa verið gaman að fá að borða það sem hann langaði í. En gamanið hafi þó fljótlega kárnað. AFP

Leikarinn Mark Wahlberg greindi frá því í nýju viðtali að hann æfði af kappi, en forðaðist þó allar öfgar. Þá hámar hann ekki í sig óhollustu og fer í háttinn klukkan níu á kvöldin.

„Það er ekki að ræða það að ég fari á veitingahús, eða drekki vín. Ég fer beinlínis heim og upp í rúm. Ef ég er búinn í vinnunni klukkan átta er ég farinn að sofa klukkan níu,“ sagði leikarinn í viðtali við tímaritið Men‘s Health.

„Ég vil ekki bara líta út eins og kraftlyftingakappi, ég hef gert það áður. Ég vil geta leikið við börnin mín, hlaupið um og spilað körfubolta.“

Leikarinn þurfti þó að gera hlé á æfingunum og bæta á sig kílóum fyrir nýjustu mynd sína Deepwater Horizon.

„Ég borðaði mikið af steiktum mat, samlokum, pasta. Við vorum í New Orleans, þannig að það var enginn skortur á slíku. Ég þyngdi mig eins mikið og ég gat, sem var skemmtilegt um stund, síðan varð það óþægilegt í hitanum.

Frétt Daily Mail

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson