Opin fyrir fylgjuáti

Blac Chyna og Rob Kardashian eiga von á lítilli stúlku.
Blac Chyna og Rob Kardashian eiga von á lítilli stúlku. Skjáskot Instagram

Fyrirsætan Blac Chyna og raunveruleikastjarnan Rob Kardashian eiga von á lítilli stúlku á næstunni.

Líkt og fram kemur í frétt Daily Mail hefur Chyna, sem á fyrir þriggja ára son, gefið út að hún geti vel hugsað sér að borða fylgjuna að fæðingu lokinni.

„Maður getur látið útbúa pillur, en þær eru hollar fyrir þig og barnið. Þegar hundar og kettir eignast afkvæmi éta þeir fylgjuna. Maður segir „nei ekki gera þetta,“ en þeir gera það og það er hollt. Mér finnst ég betur upplýst nú þegar ég geng með annað barnið mitt.“

Chyna yrði ekki fyrsta stjarnan til að leggja sér fylgju sína til munns því mágkona hennar Kim Kardashian segist hafa gert slíkt hið sama. Þá lét Coleen Rooney einnig frostþurrka fylgju sína og gera úr henni pillur sem hún notaði sem bætiefni.

Frétt mbl.is: Kim gæðir sé á eigin fylgju

Frétt mbl.is: Coleen kjamsar á eigin fylgju

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant