Óhefðbundið heimilislíf Jolie/Pitt fjölskyldunnar

Jolie / Pitt hjónin ásamt börnunum þeirra. Annie Liebowitz tók …
Jolie / Pitt hjónin ásamt börnunum þeirra. Annie Liebowitz tók myndina. Skjáskot E-online

Það hefur líkast til ekki farið fram hjá neinum að stjörnuhjónin Angelina Jolie og Brad Pitt eru að skilja. Leikkonan sótti um skilnað frá Pitt á mánudaginn, og sagði ástæðuna vera ósættanlegan ágreining. Þá hefur því einnig verið haldið fram að Jolie hafi verið orðin langþreytt á áfengis- og kannabisneyslu Pitts, sem og reiðistjórnunarvanda hans.

Pitt er sagður afar ósáttur við ummæli eiginkonunnar, auk þess sem hann er sagður foxillur út í Jolie fyrir að hafa komið fjölskyldunni í þessar aðstæður en heimili þeirra hefur verið umkringt ljósmyndurum undanfarna sólarhringa.

Hjónin eiga saman sex börn á aldrinum 15 til átta ára, en þrjú þeirra eru ættleidd. Þá hefur fjölskyldan haft aðsetur út um víða veröld, en heimilislífið er sagt hafa verið afar sérkennilegt í gegnum tíðina.

Frétt mbl.is: Hér hafa Pitt og Jolie búið í gegnum árin

Samkvæmt frétt Daily Mail hafa hjónin gríðarmargt starfsfólk á sínum snærum, og á tímabili höfðu þau eina barnfóstru á hvert barn, en þær voru valdar með uppruna barnanna að leiðarljósi. Í sumar var þó bróðir Jolie, James Haven, þó ráðinn til að gæta barnanna og starfsfólki fækkað.

„Þar sem þau voru með barnfóstru fyrir hvert barn hafa þau aldrei þurft að vakna á nóttinni til að sinna næturgjöfum, eða þurft að sinna þeim verkefnum sem þarf til að koma börnunum í rútínu. Barnfóstrurnar sátu með börnunum og horfðu á teiknimyndir allar nætur, á meðan Brad og Angie sváfu vært í næsta herbergi,“ er haft eftir ónefndum heimildamanni.

Börnin hafa einnig ekki gengið í skóla, heldur hafa þau haft einkakennara. Samkvæmt frétt Daily Mail hefur Jolie lýst því yfir að hún telji nú tímabært að börnin setjist á skólabekk og læri að umgangast annað fólk, enda eru eldri börnin komin á unglingsár.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson