Neitaði að tala við barnaverndaryfirvöld

Chris Brown á tveggja ára dóttur.
Chris Brown á tveggja ára dóttur. AFP

Rapparinn Chris Brown neitaði að hleypa lögreglu og barnaverndaryfirvöldum inn á heimili sitt, en kanna átti heimilisaðstæður dóttur hans.

Brown á tveggja ára dóttur með fyrrverandi ástkonu sinni, Nia Guzman, en samkvæmt frétt Daily Mail er hún talin hafa haft samband við barnaverndarnefnd. Brown og Guzman eru með sameiginlegt forræði yfir stúlkunni, og dvelur hún hjá föður sínum 12 daga í mánuði.

Í síðasta mánuði var rapparinn handtekinn, en hann var sakaður um að hafa hótað konu með byssu á heimili sínu. Honum var seinna sleppt gegn tryggingu.

Rapparinn hefur áður komist í kast við lögin, en hann var dæmdur fyrir árás á þáverandi unnustu sína, Rihanna, árið 2009.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson