Pitt sagður hafa átt í erjum við Maddox

Angelina Jolie, Maddox Jolie-Pitt og Brad Pitt.
Angelina Jolie, Maddox Jolie-Pitt og Brad Pitt. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Mikið hefur verið rætt um hjónaskilnað stjörnuparsins Angelinu Jolie og Brad Pitt, en leikkonan sótti um skilnað frá leikaranum fyrr í vikunni.

Því hefur verið haldið fram að Pitt hafi veist að börnum þeirra hjóna með orðum og ofbeldi í síðustu viku, og hafa ýmsir miðlar lýst því yfir að það sé ástæða skilnaðarins.

Bandaríska alríkislögreglan hefur nú greint frá því að hún sé að kanna ásakanir á hendur leikaranum, en honum er gert að sök að hafa veist að minnst einu barni þeirra hjóna í einkaþotu á dögunum.

Samkvæmt frétt Daily Mail átti Pitt í erjum við elsta son þeirra, hinn 15 ára Maddox. Fjölskyldan er sögð hafa verið á leið frá Frakklandi, en þota þeirra lenti í Minnesota.

Pitt er nú sagður dvelja á heimili fjölskyldunnar í Los Angeles, en samkvæmt frétt Daily Mail hafast Jolie og börnin við í leiguíbúð í Malibu.

 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson