Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur sem Auður, hefur samið við höfundarréttarfyrirtækið Imagem Music. Í fréttatilkynningu segir að samninginn megi rekja til tónleika Auðar á tónlistarkaupstefnunni Musexpo í Los Angeles í apríl þar sem fulltrúi Imagem var á svæðinu.
Meðal annarra tónlistarmanna hjá Imagem eru Daft Punk, M.I.A., Bombay Bicycle Club, William Orbit og Mark Ronson.
Auðunn fram á tónleikum í París ásamt franska listamanninum AaRON í kvöld og í október ferðast hann til Montréal í Kanada til að taka þátt í Red Bull Music Academy, fyrstur íslendinga, segir í tilkynningu.
Auður mun koma fram á nokkrum tónleikum á Iceland Airwaves hátíðinni í nóvember og í aðdraganda hennar mun nýtt efni frá kappanum líta dagsins ljós.