Hanks kom brúðhjónum á óvart

Tom Hanks gladdi ung brúðhjón á dögunum.
Tom Hanks gladdi ung brúðhjón á dögunum. Ljósmynd / skjáskot Twitter

Leikarinn Tom Hanks gladdi ung brúðhjón heldur betur á dögunum þegar hann vatt sér upp að þeim í miðri myndatöku.

Að sögn ljósmyndarans Meg Miller var leikarinn að skokka í Central Park í New York, þegar hann kom auga á brúðhjónin.

„Hann var í hettupeysu og með derhúfu, en hann tók hana af sér þegar hann nálgaðist. Hann sagði, hæ ég er Tom Hanks, og við sögðum að við vissum það. Hann sagði einnig að hann væri vígður til prests og bauðst til þess að sjá um vígsluna ef þau gætu gift sig á þessari stundu. Þau voru þó þá þegar gift,“ sagði Miller í samtali við Today.

Hanks bauðst til að stilla sér upp með brúðhjónunum, sem þau þáðu. Leikarinn deildi síðan mynd af brúðhjónunum á Twitter-síðu sinni.

„Elizabeth og Ryan, til lukku. Kveðja Hanx.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson