Viðurkennir stuld á nektarmyndum

Jennifer Lawrence var ein þeirra Hollywood-stjarna sem varð fyrir innbroti …
Jennifer Lawrence var ein þeirra Hollywood-stjarna sem varð fyrir innbroti mannsins. AFP

Tölvuþrjótur frá Chicago í Bandaríkjunum játaði sekt sína vegna innbrots á netdrif hinna ýmsu Hollywood-stjarna árið 2013 og 2014 og að hafa komið persónulegum ljósmyndum af þeim í umferð.

Samkvæmt samkomulagi við saksóknara viðurkenndi maðurinn, Edward Majerczyk, að hafa brotist inn á lokuð svæði til að sækja myndirnar. Saksóknari hefur á móti lofað að óska eftir vægari refsingu, eða 9 mánaða fangelsi. Hámarks refsing fyrir brot eins og þetta er aftur á móti 5 ár.

Í máli verjanda mannsins kom fram að hann hafi ekki reynt að hagnast neitt á myndunum heldur hafi birting myndanna og innbrotin verið skemmtun fyrir hann. 

Lögreglan leitar enn að þeim aðila sem dreifði myndunum eftir að Majerczyk stal þeim.

Ein þeirra sem varð fyrir innbrotinu og birtingunni er leikkonan Jennifer Lawrence. Hún lét hafa eftir sér árið 2014 að málið væri ekki skandall heldur kynferðisbrot. Sagði hún myndirnar ekki hafa verið ætlaðar í almenna dreifingu heldur hafi þær verið hugsaðar fyrir kærasta hennar þar sem þau hefðu verið í fjarsambandi á þeim tímapunkti. 

Majerczyk notaðist við þekkta aðferð til að komast yfir lykilorð fólks, en hann þóttist senda tölvupóst í nafni netþjónustufyrirtækis og bað fólk um að fara á heimasíðu sem hann hafði hannað til að villa um fyrir fólki. Þar sló það inn lykilorðið sitt og komst hann þannig yfir það. Talið er að um 300 manns hafi verið plataðir með þessari aðferð hans, þar af 30 Hollywood-stjörnur.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler