Söngkonan Selena Gomez er ókrýnd drottning samfélagsmiðilsins Instagram, en í vikunni varð hún fyrsta stórstjarnan til að sanka að sér yfir 100 milljón fylgjendum líkt og fram kemur í frétt Daily Mail.
Söngkonan skaut þá vinkonu sinni Taylor Swift ref fyrir rass, en fylgjendur hennar eru 91,5 milljónir. Söngdrottningin Beyoncé er einnig gríðarlega vinsæl á Instagram, en 85,4 milljónir manna fylgjast með henni. Þá fylgir raunveruleikastjarnan Kim Kardashian fast á hæla þeirra, en þegar þetta er skrifað á hún 83,7 milljón aðdáendur á miðlinum.
Gomez greindi frá því fyrr á árinu að hún hygðist taka sér frí frá tónleikahaldi til að taka heilsuna föstum tökum, en hún þjáist af sjálfsónæmissjúkdómnum lupus sem á íslensku er gjarnan kallaður rauðir úlfar.
Frétt mbl.is: Aflýsti tónleikaferðalaginu sökum veikinda
Það hefur því ekki mikið verið að gerast á Instagram-síðu hennar, og var síðasta færsla birt fyrir sex vikum. Það virðist þó ekki gera að sök, enda söngkonan vinsælli en aldrei fyrr.
Þetta er vinsælasta Instagram-færsla stjörnunnar, en hún halaði inn 5,6 milljónum læka.
when your lyrics are on the bottle 😛 #ad
A photo posted by Selena Gomez (@selenagomez) on Jun 25, 2016 at 2:03pm PDT