Tónleikagestir á nýafstöðnum tónleikum Britney Spears í London voru hundfúlir yfir frammistöðu söngkonunnar, sem sögð er hafa „mæmað“ eða hreyft varirnar í takt við tónlistina í stað þess að syngja.
Tónleikar stjörnunnar voru þeir fyrstu þar í landi í fimm ár, en óhætt er að segja að þeir hafi fallið í fremur grýttan jarðveg líkt og fram kemur í frétt Mirror. Þá sökuðu margir söngkonuna um að hafa ekki verið í takti, auk þess sem dansatriði hennar þótti vera hræðilegt.
Söngkonan sjálf kennir flugþreytu um vandann, auk þess sem tónleikarnir hafi verið öðruvísi en þeir sem hún heldur jafnan í Las Vegas.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem söngkonan er sögð hafa svikist um að syngja á tónleikum, en hún var sögð hafa hreyft varirnar í stað þess að syngja á VMA-verðlaununum sem fram fóru í síðasta mánuði. Þá var hún jafnvel sökuð um að hafa „mæmað“ þegar hún var gestur í bíla-karíókí James Corden í sumar.