Vill fá nálgunarbann á hrekkjalóminn

Kardashian er sögð vilja fá nálgunarbann á hendur manninum, sem …
Kardashian er sögð vilja fá nálgunarbann á hendur manninum, sem hrellir fræga fólkið reglulega. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er sögð vilja fá nálgunarbann á hrekkjalóminn Vitalii Sediuk, en í gær laumaði hann sér fram hjá öryggisvörðum og reyndi að smella kossi á afturenda stjörnunnar.

Hinum úkraínska Sediuk varð þó ekki kápan úr því klæðinu enda er Kardashian jafnan í fylgd öryggisvarða, og voru þeir fljótir að snúa hann niður.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Kardashian verður fyrir barðinu á Sediuk, en fyrir tveimur árum reyndi hann einnig að grípa til hennar, líkt og fram kemur í frétt Daily Mail.

Þá komst hann einnig í fréttirnar fyrir skömmu þegar hann veittist að fyrirsætunni Gigi Hadid, greip utan um hana og lyfti henni upp. Hadid var svo brugðið að hún brá á það ráð að berja frá sér.

Frétt mbl.is: Gigi Hadid neyddist til að verja sig

Sediuk er fyrrverandi sjónvarpsmaður en hann hefur margoft abbast upp á hinar ýmsu stórstjörnur. Til að mynda kyssti hann Will Smith árið 2012, með þeim afleiðingum að leikarinn löðrungaði hann. Þá braut hann gleraugu Brad Pitt árið 2014 þegar hann ruddist upp að honum á frumsýningu kvikmyndarinnar Maleficent.

Svo virðist vera sem Sediuk hafi reynt að kyssa afturendann …
Svo virðist vera sem Sediuk hafi reynt að kyssa afturendann á Kardashian. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson