Það er aldrei nein lognmolla í kringum Kardashian fjölskylduna, enda skapar hún sér tekjur á því að vera með drama.
Á dögunum var greint frá því að Rob Kardashian hefði birt símanúmer yngstu systur sinnar, Kylie Jenner, á Twitter en í kjölfarið fékk hún yfir sig flóðbylgju af símtölum og skilaboðum frá æstum aðdáendum.
Kardashian var þó ekki heppnari en svo að unnusta hans, fyrirsætan Blac Chyna birti númer hans á Twitter-síðu sinni.
Að eigin sögn birti hún númerið til þess að kenna Kardashian lexíu, en hún segir hann vera að skiptast á skilaboðum við aðrar konur.
„Þar sem allar þessar dömur vildu halda áfram að senda honum skilaboð vegna þess að þær voru með númerið hans, án þess að spyrja hvort að það væri allt í góðu lagi á milli okkar. Já, það er allt í góðu á milli okkar,“ sagði Chyna svo í snapchat-myndbandi sem hún birti nokkru síðar.
Frétt Mirror