„Hafði aldrei verið eins einmana“

Nicole kidman segist hafa fundið hamingjuna.
Nicole kidman segist hafa fundið hamingjuna. AFP

Leikkonan Nicole Kidman gekk að eiga Tom Cruise þegar hún var aðeins 23 ára gömul. Í dag, þegar hún lítur til baka, segist hún ekki skilja hvað hún var að hugsa.

„Ég var svo ung þegar ég gifti mig. Ég lít til baka og skil ekkert í sjálfri mér. Ég átti tvö börn þegar ég var 27 ára, og hafði verið gift í fjögur ár. En það var það sem ég vildi.“

Kidman og Cruise skildu árið 2001, en líkt og fram kemur í frétt Daily Mail var leikkonan einstaklega einmana eftir að hjónabandi þeirra lauk.

„Eftir skilnaðinn sinnti ég verkefnum sem fengu mikið lof, sem var mjög áhugavert fyrir mig. Eftir skilnaðinn fékk ég Óskarsverðlaun, sem varð til þess að ég fékk hugljómun. Þetta er ekki svarið. Ég hélt á gullstyttu og hafði aldrei verið eins einmana.“

Í dag er leikkonan hamingjusamlega gift tónlistarmanninum Keith Urban, en þau eiga saman tvær dætur.

„Við höfum gengið í gegnum margt þessi 10 ár, og við erum sterkari en nokkru sinni fyrr.“  

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson