Hjónabandið hefur róandi áhrif

Jennifer Aniston og Justin Theroux eru hamingjusamlega gift.
Jennifer Aniston og Justin Theroux eru hamingjusamlega gift. AFP

Leikarinn Justin Theroux opnaði sig um hjónaband hans og Jennifer Aniston í nýju viðtali og sagði það hafa haft róandi áhrif á sig.

Aðspurður að því hvort hann tryði á einkvæni sagði leikarinn: „Augljóslega, ég er giftur. Ég held að hjónabandið hafi kennt mér að kyrrast. Það hefur róandi áhrif.“

„Ég held að þetta snúist um á hvaða aldri þú skuldbindur þig. Líkt og þegar maður hugsar um fólk á sjötta áratugnum sem gekk í hjónaband þegar það var um tvítugt skilur maður ekki hvað það var að hugsa,“ sagði leikarinn í samtali við ELLE.

Leikarinn segist þó elska að vera í hjónabandi með eiginkonu sinni, þó að fjölmiðlafárið í kringum þau fari stundum í taugarnar á honum.

„Þetta er algert lúxusvandamál, en ég myndi gjarnan vilja geta gengið um með konunni minni og geta heimsótt Washington Square Park. Hvað myndi gerast ef við myndum láta verða af því, það yrði algert rugl og ekki skemmtilegt.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson