Jolie vill halda demöntunum

Angelina Jolie á stórt og mikið safn skartgripa.
Angelina Jolie á stórt og mikið safn skartgripa. AFP

Fregnir herma að Angelina Jolie, sem sótti um skilnað frá Brad Pitt á dögunum, hafi farið fram á að halda ýmsum skartgripum og öðrum persónulegum munum.

Líkt og fram kemur í frétt Hollywood Reporter eru skartgripir leikkonunnar ekki af verri endanum, og eru þeir gríðarlega verðmætir. Þá er trúlofunarhringurinn sem Pitt gaf Jolie á sínum tíma metinn á 250 þúsund Bandaríkjadali, eða tæpar 29 milljónir íslenskra króna.

Hringurinn er þó ekki það eina sem má finna í skartgripaboxi leikkonunnar, en leikkonan sést reglulega á rauða dreglinum hlaðin dýrgripum. Sumir gripirnir eru í hennar eigu, en aðra fær hún lánaða.

Árið 2009 skartaði leikkonan til að mynda stærðarinnar smaragðseyrnalokkum úr smiðju Lorraine Schwartz á frumsýningu, en þeir eru metnir á 2,5 milljónir dollara, eða rúmar 287 milljónir króna.

Áður hefur verið greint frá því að hjónin hafi gert með sér kaupmála, og ekki verði erfitt að skipta eigum þeirra.

Frétt mbl.is: Barist verður um börnin

Hringurinn er ekkert slor.
Hringurinn er ekkert slor. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson