Ben Affleck til Íslands

Ben Affleck leikur í kvikmyndinni Justice League, en tökur fara …
Ben Affleck leikur í kvikmyndinni Justice League, en tökur fara meðal annars fram á Íslandi. AFP

Stórleikarinn Ben Affleck greindi frá því á dögunum að ferðinni væri heitið til Íslands, þar sem ætlunin er að taka upp atriði fyrir kvikmyndina Justice League.

Líkt og fram kemur í frétt Vísis fara tökur fram í Djúpavík á Ströndum, en fyrir helgi mátti þar sjá hjólhýsi í tugatali sem ætluð eru tökuliði og leikurum.

Þá greindi Affleck frá því í spjallþættinum Live With Kelly að hann myndi dvelja nokkra daga á Íslandi, en fram að því hafði leikarinn dvalið í fjóra mánuði í London við tökur.

Justice League verður frumsýnd í desember en fjöldi stórstjarna fer með hlutverk í kvikmyndinni, til að mynda Jared Leto, Amber Heard, Amy Adams, Ezra Miller og Jesse Eisenberg.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant