Eyðir 32 milljónum í flug fyrir hundana

Sharon og hundarnir hennar tveir.
Sharon og hundarnir hennar tveir. Ljósmynd / skjáskot Mirror

Sjónvarpskonan Sharon Osbourne eyðir 230 þúsund sterlingspundum, eða rúmum 32 milljónum íslenskra króna, á ári í flugfargjöld fyrir hundana sína tvo.

Osbourne er mikið á ferðinni, en hún er dómari í bandarísku X Factor-þáttunum auk þess sem hún sér um spjallþáttinn The Talk sem tekinn er upp í London.

Til þess að takast á við streituna sem fylgir tíðum ferðalögum hefur Osbourne tekið upp á því að ferja kjölturakkana sína með sér á milli staða, en samkvæmt frétt Mirror fljúga þau að sjálfsögðu á fyrsta farrými.

Þá er því einnig haldið fram að Osbourne komist fram hjá ströngum reglum um flutning dýra, og eru hundarnir sagðir fá undanþágu þar sem þeir veita henni andlegan stuðning.

„Starf Sharon er erilsamt og öll ferðalögin taka sinn toll. Bella og Rocky veita henni huggun og eru bæði fullkomlega ánægð með að vera í 36 þúsund feta hæð,“ er haft eftir heimildamanni tengdum stjörnunni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson