Það er allt strand

Angelina Jolie, Brad Pitt og hluti barna þeirra, á meðan …
Angelina Jolie, Brad Pitt og hluti barna þeirra, á meðan allt lék í lyndi. AFP

Brad Pitt og Angelina Jolie hafa ekki átt í neinum samskiptum síðan Jolie ákvað að sækja um skilnað frá eiginmanninum í lok síðasta mánaðar.

Þess í stað hafa þau látið lögfræðiteymi um samningaviðræður er varða umgengnisrétt barna þeirra.

Tilkynnt var um skilnaðinn fyrir fjórum vikum en þá sagði fjölskylduvinur að „ástandið væri afskaplega sorglegt.“

Áður hefur komið fram að Jolie vill fullt forræði yfir börnunum sex en Pitt sækist eftir sameiginlegu forræði.

„Þau eru enn að vinna í málum sem engin sátt virðist ætla að nást um. Það er allt strand,“ sagði heimildamaður slúðurritsins People.

Fyrir skömmu hitti Pitt börnin aftur eftir þriggja vikna aðskilnað. Eitt barnanna lét þó ekki sjá sig.

Hinn 15 ára gamli Maddox kaus að hitta ekki föður sinn. „Hann ákvað að fara ekki og var frekar með móður sinni,“ sagði heimildamaður People.

Jolie ættleiddi Maddox árið 2002, tveimur árum áður en hún og Pitt hófu samband sitt. Mæðginin eru sögð mjög náin og Maddox lítur ekki á sig sem son Pitts.

Verið er að rannsaka hvort Pitt hafi slegið Maddox í flugvél. Það á að vera kornið sem fyllti mælinn hjá Jolie og er sögð ástæða þess að hún sótti um skilnað. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson