Pitt hefur ekki svarað Jolie

Angelina Jolie og Brad Pitt.
Angelina Jolie og Brad Pitt. AFP

Brad Pitt hefur ekki gefið frá sér formlegt svar við skilnaðarumsókn Angelinu Jolie en fresturinn til þess rann út á mivðikudaginn. Er því haldið fram í miðlum vestanhafs að Pitt muni ekki skila inn formlegu svari fyrr en eftir að lögmenn hans og Jolie hafa náð samkomulagi hvað varðar forræði yfir börnum þeirra sex.

Pitt mun vera að sækjast eftir sameiginlegu forræði ef marka má fregnir TMZ og vonast til þess að málið þurfi ekki að rata fram fyrir dómstóla.

Jolie sótti um skilnað frá Pitt 19. september og sóttist jafnframt eftir því að hún ein fengi forræði yfir börnunum.

Fyrr í vikunni hitti Pitt elsta son sinn og Jolie, Maddox, í fyrsta skiptið síðan að hann á að hafa beitt hann ofbeldi í flugvél í síðasta mánuði. FBI, alríkislögregla Bandaríkjanna, segist nú vera að skoða málið en ekki hefur verið tekin ákvörðun um formlega rannsókn.

Pitt á að hafa hitt hin börnin sín 8. október en þá neitaði Maddox að mæta.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant