Söngkonan Janet Jackson greindi nýlega frá því að hún ætti von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum, Wissam Al Mana. Hjónakornin eru í óða önn að undirbúa komu erfingjans, en þau keyptu barnaföt af miklum móð í London á dögunum eins og fram kemur í frétt Mirror.
Frétt mbl.is: Jackson staðfestir þungunina
Söngkonan, sem er fimmtug, sagði í nýlegu viðtali að hún teldi sig afar lánsama að vera barnshafandi. Undanfarið hefur hún að mestu haldið sig til hlés, en hún er talin hafa nýtt sér aðstoð frjósemislækna við að verða þunguð.
Jackson og Al Mana gengu í hjónaband árið 2012 en greindu ekki frá því fyrr en ári síðar. Al Mana er eigandi Al Mana-samsteypunnar, sem er með höfuðstöðvar í Katar þar sem hjónin búa.