Sambandið sagt stormasamt

Blac Chyna og Rob Kardashian eiga von á lítilli stúlku …
Blac Chyna og Rob Kardashian eiga von á lítilli stúlku í næsta mánuði. Ljósmynd / skjáskot Instagram

Ástarlíf raunveruleikastjarnanna Rob Kardashian og Blac Chyna hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarið, en þau eiga von á fyrsta barni sínu í næsta mánuði.

Samkvæmt frétt Daily Mail er sambandið stormasamt, en skötuhjúin eru sögð búa hvort í sínu húsinu. Þá eru þau sögð hafa gert samkomulag um hvernig uppeldi barnsins verði háttað, en barnið mun búa hjá móður sinni í húsi hennar.

Samkvæmt frétt miðilsins hefur Kardashian lýst því yfir að hann sé reiðubúinn að fara í pararáðgjöf til þess að bjarga sambandinu, en hann hyggst þó ekki selja hús sitt og flytja inn með barnsmóður sinni.

Kardashian er sagður dvelja hjá unnustu sinni þegar vel gengur, þótt hann búi í eigin húsi þess á milli.

Á dögunum var greint frá því að samband parsins væri á hálum ís, en þau hafa látið öllum illum látum á samfélagsmiðlum. Þá hefur verið greint frá einkalífi þeirra í raunveruleikaþætti sem fjallar um líf þeirra.

Frétt mbl.is: Birti númer Kardashian á Twitter

Frétt mbl.is: Búið spil hjá Rob og Blac Chyna?

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson